|
|
05.02.2007 11:33:52 / darriat
Ástandið í heimsmálum er víst orðið ansi slæmt ef maður má ekki
bregða undir sig betri fætinum og skreppa til útlanda, án þess að
koma stórslasaður til baka.
Ég fór í sakleysi mínu til Svíþjóðar og ætlaði þar að
fara vinna við að ferja nýja Volvo flutningabíla úr verksmiðju til
umboða á norðurlöndum, en mér var greinilega ekki ætlað að vera
þarna úti, því að í fyrstu ferðinni minni sem átti að vera til
Noregs, þá fer bíllinn útaf og fór alveg í köku. Þetta kostaði mig
tveggja daga spítalavist (sem var þó bærilegri þar sem sænsku
hjúkkurnar voru mjög almennilegar; já og sætar), 4 skurði og brotið
rifbein. Þannig að ég dreif mig bara heim um leið og ég losnaði af
spítalanum og er farinn að trukkast aftur hjá Landflutningum.
Reyndar kom þetta með rifbeinsbrotið ekki upp
fyrr en nokkrum dögum seinna þegar ég byrjaði að vinna aftur hérna
heima, og ég ætlaði í sakleysi mínu að skreppa upp á Borgarspítala
og láta taka röntgenmynd af þessu, en þegar þeir heyrðu að ég hefði
verið á spítala í Uddevalla, þá varð allt vitlaust og mér var hent
í tveggja tíma einangrun, og allir sem komu nálægt mér þurftu að
vera í einhverjum svaka sloppum og læti. Þá var þetta einhver
standard á sjúklingum sem hafa verið erlendis út af möguleika á
einhverri veirusýkingu. En um leið og þeir sáu sér fært um að taka
af mér mynd, þá var mér bara hent út af spítalanum með uppáskrift á
einhver lyf. Gaman að þessu...
En að uppvaskinu. Við bræður erum ekki miklar húsfreyjur í okkur.
Eldum ekkert voðalega oft, og þegar það gerist, þá er helsta
vandamálið á eftir uppvaskið. Þetta er náttúrulega ekkert annað en
bölvuð leti í okkur, en við erum að reyna að leysa þetta vandamál
friðsamlega. T.d. er í vinnslu að fá manneskju í þetta, eða slá í
púkk og kaupa uppþvottavél. Reyndar svolítið dýr leti. En svona er
þetta að vera á kvenmannslausu heimili...
Oddur og Diddi keyptu sér hvíta líkvagninn um daginn, mikill
söknuður af þeim bíl úr fjölskyldunni. En þó bót í máli að hann fór
ekki langt. Hann þjónar því hlutverki þessa dagana að vera
durgsvagn og rommí borð
Þetta ætti að vera komið gott, þarf að fara sinna bústörfum
Bóndinn
»
10.01.2007 15:00:03 / darriat
Jæja, þá er komin niðurstaða úr síðustu skoðanakönnuninni, sem
sýnir það svart á hvítu að Þórður Björnsson (oft kenndur við Madsen
ættina) hlýtur titilinn durgur ársins 2006. Fékk hann í jólagjöf
forláta Viking stígvél (deluxe útgáfa) og vonum við að þau gagnist
honum við durgsleg störf á næstunni. Ekki hefur enn tekist að festa
Madsen yngsta við störf í stígvélunum á filmu, og er talið að það
sé vegna þess að hann sinnir sínum durgsverkum bakvið tjöldin.
Bjóðum við hinir (meðfæddu) durgarnir hann velkominn í hópinn
»
29.11.2006 16:15:57 / darriat
Jæja, eins og á ábyggilega 70% af bloggsíðum landans ætla ég að
byrja á að kvarta undan því hversu lélegur ég er að blogga. Sem er
jú sannleikurinn, ég er lélegur bloggari. En út af hverju er það?
Jújú, lifi tilbreytingalausu lífi og sé ekki tilganginn í því eins
og sumir að blogga um hvert einasta skipti sem þeir fara eitthvað
útfyrir heimilið, eða einhver "ómægaðskilurru, hún var alveg
tótallí að reyna við Krissa" blogg. Sumir reyna að filla upp í
bloggleysið með heimspekilegum pælingum, svona spurningalistum eða
kóperuðu drasli, á meðan aðrir, eins og ég, fá útrás á þessu
blessaða drasli til að nöldra þegar þeir hafa ekkert að gera, og
sjaldan eru bloggsíður jafn aktívar og í kringum próf, þegar fólk
er gjörsamlega að reyna að gera ALLT annað en að læra. En já, ég
ætla bara að halda uppi uppteknum stíl og blogga bara þegar allt
annað þrýtur, þaes þegar ég er búinn að hlusta á alla tónlistina í
tölvunni og skoða hverja einustu Volvomynd á netinu....
Að vera á vöktum er yndislegt, ég ætla ekki að neita því. Vikurnar
skiptast á kvöld og dagvakt. Kvöldvaktirnar eru bestar. Bæði fer ég
þá norður á hverju kvöldi, og fæ líka að sofa út alla vikuna.
Ekkert betra en að heyra í Breka fara í skólann kl 8, og fara aftur
að sofa, og vakna ekki fyrr en á hádegi. Verst er bara að þegar ég
vakna hef ég voða lítið að gera, eins og núna, þar sem að allir eru
að vinna eða í skólanum. En þetta er samt gott. Og að keyra á
nóttunni, þegar nánast enginn er á ferðinni, er líka bara best.
Ekkert nema ég, Benz hrúgan, græjurnar, vegurinn og svo stjörnurnar
og norðurljósin. Hljómar voðalega rómantískt eitthvað, en hættir að
vera það um leið og það byrjar að snjóa og hvessa, þar sem að það
er yfirleitt svipaður vindhraði og skafrenningur inni í bílnum og
fyrir utan hann. Segið svo að Benz framleiði gæðabíla....
Og já, eins og glöggir lesendur nöldurtíðinda tóku eftir, þá er ég
víst búinn að versla mér Toyotu, af Hilux gerð, 1992 árgerð. Fyrsta
ökutækið sem ég á sem brýtur Volvohefðina, (óþarfi samt að örvænta,
ég á áfram Volvoinn), og 5. bíllinn minn. Tek undir með Daða þegar
ég sagði honum frá þessu: "þá vitum við hvað jólafríið fer í "
Jeppinn þekkist á meira magni af ryði en áður þekkist og upplituðu
lakki, auk þess að það er ennþá kindaskítur á pallinum eftir að ég
fór að smala í sveitinni og henti þeim á pallinn.
Gestir og gangandi mega svo koma í kaffi í nýju íbúðina, best er
samt ef þeir taka eitthvað að borða með sér þar sem við bræður erum
yfirleitt búnir að klára allt ætt hérna.....
Svo vil ég óska Rakeli og Svavari til hamingju með guttann
Bóndinn, over and out
»
17.09.2006 23:26:46 / darriat
Var að koma af hinni stórsniðugu mynd United 93, sem fjallar um
flugvélina sem brotlenti 11. september. Mjög góð mynd, full amerísk
samt á köflum, sem einkennist af "I love you" og "ómægad", og
stöðluðu herbrölti, en í heildina mögnuð og maður virkilega
sogaðist inn í þetta og hún hafði töluverð áhrif á mann.
En þar sem myndin var aðeins sýnd í Kringlunni, fór Ólsarafjelagið
+ viðaukinn þangað, en mætti gríðarlegum fjölda barna undir
lögaldri sem var að hanga þarna, þannig að ég fór að pæla hvör
djöfullinn væri í gangi, hvort að þetta væri alveg venjuleg
hópamyndun, sem síðar myndi leiða af sér óeirðir og slagsmál, þar
sem óeirðalögregla Reykjavíkur myndi mæta á staðinn í Volvo
Lapplander, leysa upp þessa vitleysu með kylfum og táragasi, eða
hvort að grey börnin væru hreinlega á leið í bíó eins og við. Svo
er líka bara spurning hvort að ég sé orðinn svo helvíti gamall að
ég muni ekki eftir því að hafa gert þetta sjálfur á sínum tíma,
nema hvað að í mínum ungdómi var engin Kringla í Ólafsvík, þannig
að hangsið var á "Söluskálanum" eða við "Mafíuna". Og gsm símar
fengust ekki fyrr en eftir fermingu. Og stelpurnar voru á þeim tíma
(því miður) ennþá í fötum yfir höfuð. En það er önnur ella...
Jæja, þá er litla systir orðin stór, komin í ómenninguna á
Akureyri, og er skv nýjustu fréttum að taka staðinn í gegn. Ég man
nú þá tíð (djöfull er maður orðinn gamall, talandi svona) þegar ég
gekk fyrst inn fyrir dyr MR, skíthræddur landsbyggðarguttinn, og
mæti þar fullt af gáfulegu fólki, þ.m.t. gaurinn í lopapeysunni með
skeggið sem drakk kaffi og las ljóðabók. Og ekki skánaði það þegar
ég labbaði svo inn í A stofu Menntaskólans og var greinilega
síðastur inn, sem var einstaklega slæmt, þar sem ég þurfti þá að
setjast við hliðina á sætustu stelpunni í bekknum  En
já, heil 4 ár síðan, og núna vakna ég á sunnudagsmorgnum, og það
fyrsta sem ég hugsa, áður en ég ákveð að leggja mig aftur er: Ég
þarf ekki að gera nein helvítis heimaverkefni
»
06.09.2006 23:01:40 / darriat
Jæja, er búinn að kíkja hingað reglulega í sumar, og það kemur mér
eiginlega mest á óvart að það sé ennþá töluverð traffík hingað inn
þrátt fyrir að ég hafi ekki skrifað staf síðan í vor, þannig að ég
er svona að velta því fyrir mér að byrja þessu aftur,
skoðanakönnunin er t.d. heit þessa dagana. Sjáum til hvernig
fer.......
»
22.05.2006 22:14:24 / darriat
Jæja, maður er búinn að vera slappur að skrifa hérna, enda mikið að
gerast. Próf og læti. Kannski maður byrji þetta á smá
tékklista á því sem maður er búinn að vera gera:
- Seldi Volvoflotann, og yngdi upp um 4 ár
- Nýji bíllinn er auðvitað önnur Vaffla (Volvo)
- Skipti öðrum bílnum fyrir Canon 350D myndavél

- Kláraði prófin og útskrifast sem stúdent á miðvikudaginn
- Byrja að vinna á föstudag í Landflutningum
- Byrjaður að fljúga aftur eins og vitleysingur, vegfarendur
beðnir um að vara sig á flugvélum
- Fór að sveitalubbast, við bræðurnir vorum helvíti öflugir á
næturvöktunum í sauðburðinum
Þetta er svona það helsta. Maður þarf svo að fara sklla sér heim í
Ólafsvík (sódómu) og tékka á ástandinu, maður er að lesa að það sé
allt að verða vitlaust þarna. Svo skemma ekki fyrir kosningar næstu
helgi. Á ennþá eftir að ákveða mig hvað ég ætla að kjósa, ólíkt
sumum (Doddi)
Svo komum við einhverju fútti í þessa síðu eftir helgi, erekki allt
í lagi??????
»
05.05.2006 17:14:23 / darriat
Smá gáta svona í prófapásunni minni
Spurning dagsins er einföld: Hver er maðurinn??

Svör í kommentum
Sá sem fyrstur póstar réttu svari fær engin verðlaun, né
hinir
»
21.04.2006 21:08:45 / darriat
Já, ég veit að ég er latur við að blogga, það eru nú fleiri. Er
ekki hægt að ráða erlent vinnuafl í að semja eitthvað hérna fyrir
mig? Amk virðist vera auðveldara að flytja svoleiðis inn en
bíl??
Byrja á að óska lesendum gleðilegra páska, gleðilegs sumars og svo
gleðilegrar hátíðar takkatrúarmanna. Svo á Breki bróðir að fá klapp
á bakið fyrir bílakaup, þar sem hann fjárfesti í fallegum Mercedes
Benz 190E, tussugóður bíll verð ég bara að segja, verst að hann er
eiginlega flottari en minn, þó á sinn hátt ;-)
Já, ég skellti mér víst til okkar gömlu höfuðborgar, Köbenhavn um
páskana ásamt fríðu föruneyti kynþokkafullra karlmanna (má reyndar
deila um það), og við gerðum svona temmilegann óskunda af okkur
þarna úti. Borðuðum krókódílakjöt og kengúru, drukkum rándýrt
rauðvín, versluðum eins og íslendingum einum er lagið og skelltum
okkur til Svíþjóðar svona í leiðinni, ekki leiðinlegt það. Góð ferð
í flesta staði bara
Skólinn með sínum anallátum er framundan, próf og þannig vesen,
þannig að ekki búast við neinum hressleika hérna megin. Reyndar var
dimmissio föstudaginn 7. apríl, sem var þrususkemmtilegt, og var
maður klæddur sem Tasmaníudjöfullinn. Svo var flottur matur um
kvöldið og endaði ég á því að spila með bandinu sjö systrum sem var
búið til fyrir þetta tilefni, og prófaði ég að feta bassabrautina,
sem tókst ekki betur en svo að mér var tilkynnt eftirá að það var
lækkað niður í mér, takk fyrir ekkert Rúnar
Jæja, ég held að ég bloggi ekkert meir fyrr en ég er búinn í
prófunum 10. maí, og verður þá vonandi menntaskólaferli mínum
lokið, og við tekur vinnan hjá Landflutningum. Þá er jafnvel aldrei
að vita að maður láti smella sér á listamannalaun og get ég þá
kannski bloggað eitthvað af viti reglulega og drukkið kaffi á hótel
Borg með einhverjum menningarvitum og spjallað um atómskáld og
súran matreiðslurjóma
Myndirnar eru komnar
Lifið heil
Darri handbók Eydal Atlason bóndi
»
27.03.2006 20:25:12 / darriat
Jæja, eftir síðasta ofurblogg, sem ætti með réttu að duga mér vel
fram á sumar, þá ákvað ég nú að skella hérna inn smá rugli, þar sem
ég hef ekkert betra að gera í veikindum mínum hér í borg
óttans.
Fyrir rúmri viku síðan fór ég í eina rosalegustu afmælisveislu
áratugarins, þegar Daði sjálfur Hjálmarsson fagnaði þessum
stórmerkilega áfanga. Sigrún frænka eiginkona hans á hrós skilið
fyrir skipulagninguna á þessarri óvæntu afmælisveislu. Bjórinn rann
í stríðum straumum, og ég gerði mitt besta til að sjá til þess að
hann færi ekki til spillis. Enda kom það í ljós hjá kappanum þegar
hann var farinn að reyna við dömuna í fatahenginu
Reyndar man ég ekki mikið eftir því sem gerðist eftir að ég yfirgaf
Gaukinn, og frétti það seinna að Árný Sif hefði keyrt mig heim
Skólinn er náttúrulega geðtrylltur þessa dagana, nóg að gera í
undirbúningnum fyrir útskriftina og svona, og prófin að hrannast
inn. Er bara nokkuð sáttur við próftöfluna mína, þar sem ég er
búinn miðvikudaginn 10. maí.
Svo var skroppið heim þessa helgi og slappað af og náð sér í
veikindi, aðeins hreinsað smá úr pústinu á Hrólfi (ekki það að
Breki sjái ekki um það) og svo bara slappað af í faðmi
fjölskyldunnar
Læt þessum upptalningarpistli lokið, er farinn að læra
stjörnufræði
Darri stórbóndi með meiru
»
21.03.2006 23:39:33 / darriat
Já, titillinn segir allt sem segja þarf. Þessi færsla verður
helguð hinni miklu Belgíuferð
Þetta hófst allt á þriðjudeginum 7. mars. Ég kláraði náttúrulega
að pakka kl 2 um nóttina og fór svo beint að sofa. Og vaknaði aftur
tvem tímum seinna, kl 4 
Gusaði morgunmatnum í mig og náði svo í liðið og beinustu leið
út á flugvöll á gráu þrumunni. Þegar á flugvöllinn var komið var
okkur tilkynnt að það yrði 3ja tíma seinkun á fluginu þar sem verið
var að líma nefið á flugvélinni saman eftir að hún hafði fengið í
sig eldingu kvöldið áður. Þannig að við stóðum þarna inni í fríhöfn
kl 5 um morguninn og áttum ekki að fljúga fyrr en kl 10. Og hvað
var þá hægt að gera? Jú, skella sér í ríkið !!
Kl 10 skakklöppuðumst við svo inn í flugvélina eftir að
kennararnir stoppuðu okkur í gleðskapnum, og fundum svo sætin á
endanum, mjög svo hress. Og hvað var svo á forsíðum allra
dagblaðanna; mynd af flugvélinni okkar með svona 2m gat á nefinu
Þar sem að ég var frekar þreyttur svaf ég nánast alla
leiðina og líka á leiðinni frá flugvellinum, og við arrævuðum um 5
eða 6 á sjálfa matarráðstefnuna.
Hentum upp matarkynningunni okkar í salnum og fólk hópaðist að
borðinu til að sjá allt of seinu íslendingana. Við vorum með ýmsa
forna og góða rétti, og við pössuðum okkur einmitt á því að láta
hákarlinn fremst, og flestir smökkuðu hann, en voru líka fljótir að
fá sér nammið sem við vorum líka með. Svo var held ég það fyrsta
sem við Andri vorum spurðir að þetta kvöld : "Are you twins ? " Við
hverju átti að búast, báðir með dökkt hár, jafn háir, í svörtum
leðurjökkum, rauðum hettupeysum, hvítum bolum og svörtum leðurskóm.
Fyndnasta við þetta var að þetta var algjör tilviljun 
En eftir þessa kynningu þá var farið heim til fjölskyldunnar sem
ég átti að gista hjá þessa daga sem ég var þarna úti. Fjölskyldan
var hreint út sagt frábær. Stelpan sem bar ábyrgð á þessu hét Lies,
svo átti hún bróður sem ég man aldrei hvað heitir, mamman heitir
Marianne og pabbinn Joost (nafn sem ég get víst ekki borið fram á
flæmsku) Strax fyrsta kvöldið eftir matinn var maður drifinn út og
niður í bæ. Þar hittust flestir skiptinemarnir og gestgjafarnir á
einhverjum pöbb þarna, og var þrusu stemmning, og voru sumir
íslendingarnir hressari en aðrir. Það er t.d. ennþá verið að hlæja
að svipnum á mér þegar ég komst að því að bjórglasið kostaði aðeins
1 evru
Daginn eftir var byrjað á einhverjum fyrirlestrum fram að
hádegi, en eftir hádegi var farið í verkefnavinnuna og fór ég á
bóndabæinn í skoðunarleiðangur. Mjög áhugavert fyrir svona
sveitadurg eins og mig. En svo eftir kaffi var sko tekið áðí, og
var það blakmót. Auðvitað vorum við ÍSlendingarnir framarlega í
flokki, og lentum í öðru sæti. (Spennan náði auðvitað hámarki í
leiknum við ensku stelpurnar, en ég hef aldrei á ævinni séð aðra
eins boltahræðslu eða áhugaleysi, sem sannar kenningu Thule
auglýsinganna að við "túkk all the bjútífúl vimen from England and
had kids with them" )
Og um kvöldið var aftur farið niður í bæ, þar sem við Andri
fórum á kostum við það að læra bera fram nöfn á belgískum drykkjum
og svo söng, en við héldum úti skemmtiatriðum fyrir heilt
elliheimili þarna. Og norðmennirnir komu svo sterkir inn með
"headbang"
Fimmtudagur fór í ferð til Brugge (borið fram Bruhe), og var án
efa hápunktur ferðarinnar þegar við fórum í bruggverksmiðjuna. Þar
vorum við gæduð um gamla verksmiðju, ótrúlega áhugavert, og svo það
besta, við fengum að smakka framleiðsluna á eftir. Svo eftir þetta
röltum við Andri ásamt fríðu föruneyti um götur borgarinnar, sem er
falleg miðaldaborg með rosalegum byggingum og kirkjum. Reyndum
reyndar að halda okkur sem lengst frá ensku stelpunum, enda kom það
í ljós að þær voru bara hreint út sagt hundleiðinlegar.
En um kvöldið þá fórum við eftir mat til fjölskyldunnar sem
Andri var hjá, og var þar vægast sagt glatt á hjalla. Eitthvað var
um að menn smökkuðu mjöð, og var ég farinn að tala skuggalega mikið
þarna í lokin, enda annað ekki hægt þegar "pabbi" hans Andra var
Volvobrjálæðingur. Pælið í tilviljuninni 
Föstudagurinn fór svo í að klára verkefnavinnuna og kynna hana.
Ég er ekki frá því að smá þynnka hafi verið í gangi þar, en ég
hjólaði samt í skólann, 15 min leið. Fórum í fótbolta við liðið
þarna, en á eftir þá ætluðu fjölskyldurnar okkar Andra með okkur út
að borða. Við fórum fyrst heim til Andra og fengum okkur einn Leffe
þar, En svo var hjólað á veitingastaðinn og fékk ég þar ótrúlega
góðann fisk (og fordrykk). Og alltaf batnaði það, ALLIR kennararnir
komu inn í miðjum fordrykk, og voru "frekar" hressir (fullir). Ég
náði náttúrulega sönnunargögnum (mynd) og verður það notað ef
einkunin verður ekki að mínu skapi.
En allaveganna, eftir þetta hjóluðum við af stað niður í bæ og á
skemmtistaði og rann mjöðurinn alveg ágætlega niður. Eftir töluvert
pöbbarölt (og hjól) og allnokkra bjóra, og kjaftagang við einhverja
sem höfðu komið til Íslands, þá var svo farið á pöbbinn þar sem
allir hinir skiptinemarnir voru. Fyrir utan dyrnar tók Kristófer og
Sunniva hin norsku á móti okkur, þar sem þau voru að jafna sig á
tekíla skotum. Kvöldmaturinn hans Kris (eins og Kata kallar hann)
endaði samt á stéttinni, og þá sagði hann án efa setningu
kvöldsins: " I´ve never been so happy after I puked" Eftir
töluverða stemmningu á þessum bar þar sem ónefndur íslendingur
(KATA) átti í smá erfiðleikum með að slíta sig frá einhverjum
sveittum pela, þá fórum við Andri af stað á hjólunum með
norðmennina á bögglaberanum. Ekki þarf að taka það fram að þetta
var frekar skrautleg samkoma þar sem belgísku stelpurnar fóru á
undan til að sýna okkur leiðina, enda við Andri búnir að súpa ansi
mikið af gula vatninu og við hjóluðum jafn skakkt og kvenmaður
undir stýri. En þetta hafðist á endanum og við komumst á hinn
barinn.
Þar var rífandi stemmning, en eitthvað voru norðurlandabúarnir
orðnir svangir og var ákveðið að fara í einhverja svona nightshop
sem norðmennirnir sáu á leiðinni. Þar sem að Sunniva var ekki að
treysta Andra fór hún á bögglaberann hjá mér, en Kristófer fór til
Andra, og átti í einhverjum óvelkomnum samskiptum við rassinn á
honum (túlkist að vild). En við komust á áfangastað og fengum okkur
pizzu. En á meðan við vorum að bíða eftir henni birtust einhverjir
frekar vafasamir gaurar sem voru sko SKYHIGH. Ég lenti í spjalli
við þá báða, og annar var eitthvað að spyrja hvort ég ætti jónu. Ég
sagði auðvitað nei, og þá varð hann skrítinn í framan og sagði :
"But, when you smoke you feel like you´re connected to nature"
Eftir þessa setningu bjóst ég alveg eins við byssu og kúlu í
hausinn, og var þess vegna feginn þegar Sunniva byrjaði að garga á
mig að koma Eftir þessa lífsreynslu tók nú ekki betra við þegar
við vorum búin að borða pizzuna, því þá kom hinn gæinn út og var
gjörsamlega í ruglinu. Vildi fá að drekka vatnið mitt, en fattaði
ekki að tappinn var á flöskunni. Síðan tók hann í hendina á okkur
öllum, nema Sunnivu, hann kyssti hana á hendina, og eyddi hún næstu
5 min í að nudda henni upp við vegginn til að reyna má "gaurinn" í
burtu.
En eftir allt þetta þá var maður orðinn þreyttur og svo var bara
fundið gestgjafann og hjólað heim
Laugardagurinn mætti mér með ágætum mönnum sem eru kenndir við
timbur, en við fórum þá til Brussel. Þessi ferð var nú ekkert
sérstök, skítakuldi og svona, en gaman að sjá húsin og allt þetta
evrópusambandsbatterí og svona. En eftir kvöldmatinn, þá var farið
á Foolsgarden, og vorum við þar allt kvöldið, í GÍFURLEGRI
STEMMNINGU. Sátum þarna hópurinn á gólfinu og hörku stemmari þar.
Við Andri vorum orðnir helvíti hressir þarna undir lokin, og var ég
nú bara feginn þegar maður komst heim.
Daginn eftir, á sunnudeginum, þurftum við að vakna kl 6, þannig
að ég var allt annað en hress þegar ég kvaddi fjölskylduna og við
héldum af stað út á flugvöll. Svo kom maður heim og tók þetta
frábæra veður hérna heima á móti okkur, sól og blíða.
Ef ég á að draga eitthvað fram sem stóð upp úr í þessarri ferð
þá ber fyrst að nefna gestgjafana okkar Andra sem voru magnaðir og
við eyddum nánast öllum tímanum okkar þarna úti með þeim. Svo er
það náttúrulega bjórinn. Bæði það að hann er hræódýr og MIKLU betri
en þetta sull sem maður er að drekka hérna heima, auk þess sem hann
er töluvert sterkari, eða á bilinu 6,5 til 8,5 %. Mæli sérstaklega
með Leffe, Kvak og Duvel.
Fólkið þarna úti er líka rosalega skemmtilegt og stemmningin
bæði dagsdaglega og á pöbbunum er allt öðruvísi en hérna heima.
Maturinn var líka góður, og ég ætla ekki að minnast á þetta
ótrúlega súkkulaði, enda kom ég heim með hátt í 2 kg Ég mun aldrei
gleyma þessarri ferð, enda einir 6 skemmtilegustu dagar lífs míns
og maður fer sko pottþétt aftur þarna út til að heimsækja nýja vini
og skoða sig betur um.
Myndir eru svo á myndasíðunni minni, nenni ekki að skrifa
slóðina, hana á að vera hægt að finna hérna til vinstri
Darri heimsborgari
»
02.03.2006 01:16:47 / darriat
Já, er að dunda mér í efnafræðiskýrslum og með iTunes í gangi, og
rennur þá ekki Bjöggi Hall inn í tækið. Þá fór ég að pæla í öllum
þessu gömlu og góðu íslensku lögum sem maður ólst upp við.
Sniglabandinu, Siggu Beinteins, Þursaflokknum og öllu þessu gutli.
Alltaf gaman að heyra lög sem ekki hafa náð mínum eyrum í mörg ár,
og maður man jafnvel ennþá textann að þessum misgóðu lögum. Heima
var ágætis plötusafn sem oft var hlustað á, og skýrir það kannski
helst breiðann tónlistarsmekk minn, enda áttu þau gömlu allann
andskotann í þessum kössum. Svo var mér strax kennd listin að
höndla plötur, enda ekki sama hvernig er tekið á svona gripum
!!
Ég er nú samt það gamall að ég man eftir því þegar geislaspilarinn
kom fyrst heim. Þetta var svaka maskína sem tók einhverjar skífur
og læti. Og ég man alltaf eftir fyrsta disknum sem var keyptur
heima. Það var MC Hammer - Hammertime. Geðveik snilld sem er sko
búin að eldast vel. Þannig að þarna var ég smá pjakkur, ábyggilega
í kringum grunnskólaaldurinn að hlusta á rapp. En vandist sem betur
fer af því.......
Þetta var samt flott áður en geislaspilarinn kom, og samt löngu
eftir að hann kom. Þá var maður með allt sitt á kasettum og svo
svaka kúl með walkman. Maður sat svo fyrir Rás 1 og 2 (annað náðist
þá ekki heima) og reyndi að taka upp flott lög. Svo var tekið upp á
kasettur af vínilplötunum og svo fékk maður líka geisladiska
lánaða. Átti á endanum alveg dágóðann haug af kasettum. Man samt
alltaf eftir því þegar ég hlustaði fyrst á Guns´n roses. Frænka mín
átti þetta á kasettu og ég fékk hana lánaða. Og þetta fannst mér
alveg snargeðveikslega tryllt og flott. Svo var maður líka flottur
áðí þegar ég var dj heima hjá nemendaráði, þetta var áður en
eitthvað var byrjað að skrifa diska af ráði, þá var kannski beðið
um einhver lög á ball, þá fór maður út um allan bæ að leita að
tónlist og setja á kasettu, og svo var þetta látið rúlla næst.
Helvíti flott kasettutæki þarna í græjunum í skólanum, held að það
hafi lítið sem ekkert verið notað eftir að ég hætti, enda tæknin
orðin meiri eftir það.....
Ég komst aftur í vínilstuð síðustu helgi þegar sjálfur stórbóndinn
frá Helgavatni, Diðrik Vilhjálmsson var sóttur heim. Þar var bara
hlustað á vínilinn áður en haldið var niður í bæ, og hljómuðu þá
Mannakorn, Thors Hammer (Hljómar), Eagles og einhver þýsk
hljómsveit sem hét alveg fáránlegu nafni. Algjör snilld þar á ferð.
Svo komst ég í myndavélina hans Frikka og varð myndefnið þetta
kvöldið SLUTS bjórinn hans Didda og svo útlendingagrauturinn
frammi. Svo var haldið niður í bæ, þó svo að það hafi ekki endað
eins og það átti að gera (af hverju fékk ég enga #$%&
símhringingu? )
En núna er innan við vika í Belgíuferðina, þar sem niðurlendingar
verða sóttir heim og farið á þessa matarráðstefnu (á vel við
sælkerann mig). Við förum 6 stk + 2 kennarar og verðum frá
þriðjudegi til sunnudags. Þetta verður helvíti hressandi og
skemmtilegt að hitta þarna allra þjóða kvikindi, þó svo að ákveðnar
þjóðir heilli meir en aðrar.....
Þetta er orðið fínt í bili, svo fara allir vestur um helgina þar
sem Volvo nr 3 verður rifinn og vonandi tekinn smá rall rúntur á
honum áður en hann fer út á hauga !!
Bóndinn out
»
24.02.2006 12:48:08 / darriat
Jæja, Oddur Pé vann þessa fyrstu keppni í kveðskap og fær hann að
launum Mars súkkulaði og góð atlot næstu vikurnar. Þakka svo hinum
sem tóku þátt, og ég reyni kannski næst að finna betri orð til að
ríma við. Hérna er svo slagarinn:
Bloggar drengur, bullar oft
bestur í að nöldra
Typpið hans tels frekar soft
tussur vill hann töldra
Vikan er víst búin, aftur. Ég kvarta þó ekki, fínt að þetta sé
svona fljótt að líða. Fór samt að pæla í því um daginn hvað manni
finnst tíminn alltaf líða hraðar og hraðar. Núna er ég búinn að
vera næstum 4 ár í framhaldsskóa, en ég er samt ennþá sami asninn
og þegar ég gekk fyrst inn um dyr Menntaskólans í Reykjavík,
saklaus og hræddur. T.d. er þetta skólaár gjörsamlega búið að
fljúga áfram, og ég sé fram á það að verða gamall kall fljótlega
með þessu áframhaldi.
En hvað á maður að gera eftir framhaldsskólann?? Fara beint í
háskóla? Vinna?? Ég skil ekki alveg þennan asa sem er á mörgum að
drífa sig að klára námið, eða taka minna nám of byrja að vinna. Ég
horfi á þetta þannig að ég á hvort eð er eftir að vinna í 40 ár,
þannig að ég fæ víst á endanum leið á því. Og af hverju þá að drífa
sig í þann pakka? Af hverju ekki að dunda sér í háskólanum, læra
helling og fá helling af montgráðum. Og þarna kemur inn stytting
náms til stúdentsprófs. Til hvers? Ég skil ekki þennan asa á öllum
að fara drífa sig að vinna. Maður fattar ekki hversu gott maður
hefur það í skólanum, fyrr en eftirá
En eins og áður sagði er komin helgi. Er reyndar að vinna í nótt,
þannig að þeir sem hafa ekkert að gera kl 4 í nótt mega alveg kíkja
rúnt með mér. Svo sjáum við til hvað verður gert á
laugardag.....
Bóndinn over and out!
»
21.02.2006 21:00:45 / darriat
Nei, ég er ekki á þeim buxunum að fara hætta þessu. Eitthvað er
verið að hvetja til þess að ég minnki nöldrið í færslunum hjá mér,
skil ekki alveg hvað það á að þýða?? Hélt að allir væru til í að
lesa nöldur í svona í skammdeginu......
En núna ætla ég að reyna lyfta þessu hérna yfir á léttari nótur og
fá smá líf í vísnahornið mitt sem eitthvað er rólegt yfir þessa
dagana. Eitthvað er þetta amk fast í hausnum á mér að ég geti
eitthvað samið og verið kúl. Veit ekki hvort að þetta séu áhrif úr
sveitinni þegar í miðjum heyskapnum og baggahleðslum var maður
eitthvað gaulandi á FRÚ Margréti eða Steinunni miður góðum
kveðskap, eða hvort að ég sé ennþá að halda að þetta sem maður
samdi í MR undir andagift gamla og góða kofans (betur þekktur sem
gamli skóli). En pælingin var amk að sjá hvort að þær rúmlegu 40
flettingar sem þessi síða hefur fengið daglega undanfarið (og er
ekki að skila sér amk í kommentakerfið) fari að bera árangur ef ég
hendi inn einhverju sem á að botna eða klára?? Hvernig líst fólki á
það?? Þá verða samt einhverjir að taka sig til og taka þátt í þessu
!!
Bloggar drengur, bullar oft
bestur í að nöldra
og botnið nú !!
ATH, forláta MARS súkkulaðistöng
verður veitt í fyrstu verðlaun !!
Frestur er til hádegis á föstudag
!!
»
19.02.2006 21:12:16 / darriat
Í dag er víst konudagur. Allt gott og blessað við það, og í raun
kemur það mér ekkert við því engin er jú konan. Ætla aðeins að
renna yfir kostina við það.
Ef ég ætti konu þá:
- Hefði ég ekki fengið að sofa út til kl 5 í dag
- Ég hefði þurft að vera hress í dag
- Hefði ég þurft að eyða stórfé í einhverja gjöf
- Hefði ég þurft að vera eitthvað rómantískur í dag, annars hefði
allt orðið brjálað
- Hefði þurft að elda eða bjóða út í mat
Ætla samt ekkert að renna yfir ókostina við kvenmannsleysið, þeir
eru held ég grunsamlega margir........
Silvía Nótt átti í gær júróvisjón keppnina, með 3x fleiri atkvæði
en keppandinn í öðru sæti. Enda kominn tími á að hræra aðeins upp í
þessarri keppni. Spurning samt hvernig þessi karakter fellur í
evrópubúa, þar sem hún Silvía er jú íslenzkt fyrirbæri og hinar
þjóðirnar hafa flestar líka svona persónur. En ég er samt sáttur
við að Birgitta eða einhver annar svoleiðis froðuvibbi hafi ekki
verið sendur. Mestu mistök okkar í þessarri keppni voru að senda
ekki Botnleðju á sínum tíma.....
»
15.02.2006 20:44:07 / darriat
Þar sem ég er búinn að vera helvíti duglegur við nöldrið í síðustu
færslum , þá held ég að það sé kominn tími á að fara aftur út í
steiktar pælingar og almenna vitleysu, eins og maður ætlaði víst að
gera í upphafi....
Eitt sem ég hef aldrei skilið og mun aldrei skilja eru hnakkar.
Ekki það að ég hafi eitthvað beint mikið á móti þessu liði, þekki
nokkur eintök af þessum þjóðflokki, en ég bara botna ekkert í þessu
fólki, ef fólk skildi kalla.Ég ætla að byrja á bílunum þeirra.
Ég sé ekki alveg hvað er svona hrikalega kúl við það að keyra um á
pínulítilli dollu sem er svo mikill hávaði í pústinu að maður
hvorki heyrir í græjunum né í öskrandi smástelpunni sem vill oft
fylgja þessum drengjum. Ég sé heldur ekki kúlið í grænu neon
ljósunum, fm957 ógeðinu sem er í græjunum sem að fá númeraplötunua
til að nudda sig í gegnum blikkið eða spoilerunum og kittinu sem
þjóna nákvæmlega ENGUM tilgangi nema að þyngja bílinn og þvælast
fyrir og brotna svo á næstu hraðahindrun. Flestir keyra svo á low
profile dekkjum sem rekast í hjólaskálarnar í beygjum, fyrir utan
það að bílgreyið sem upphaflega var ætlað til ömmuaksturs eða
mömmusnatts fær alla mína samúð
Ég ætla ekki að hætta mér út í fata eða hárpælingar, enda ekki nógu
vel að mér á þessu sviði
Mér finnst samt alltaf jafn gaman að tala við hnakka, einn ágætur
drengur sem ég þekki hefur t.d. mikið álit, eða amk hafði á manni
nokkrum að nafni Justin Timberlake. Mér fannst þetta alveg
stórmerkilegt að nokkur maður gæti að staðaldri hlustað á þennan
hrylling. Svo eru umræðuefnin oft ansi skrautleg, og vilja oft
snúast upp í umræður um föt, hár og eitthvað svona sem er ofar
mínum skilningi. Auk þess sem að almenna þekkingu á venjulegum
málefnum og alla íslenskukunnáttu vantar í þetta fólk; maður á ekki
að þurfa orðabók til að hafa samskipti við aðra íslendinga. En
fyrir utan að líta út eins og brenndar piparkökur eftir pabba (samt
óþarfi að taka "The Kristínar way" á þetta) getur þetta nú ss verið
alveg ágætis fólk, svona einstaka eintök !!
En hvað fær fólk til að láta svona? Eru þetta svartir menn í hvítu
skinni? Eru þetta saklaus börn sem eru að flýja ískaldann
raunveruleikann; að við sveitamennirnir erum bara miklu svalari?
Eða er ég bara svo þröngsýnn og fordómafullur að ég sé ekki ljósið?
Eru íslendingar að HNAKKAVÆÐAST??
Nei veistu, ég held ekki
Sveitalubbinn Darri
(ps, datt víst aftur í nöldurgírinn eftir 4 línur, það verður bara
að hafa það. Vona bara að ég verði ekki settur í skammakrókinn hjá
Gamlingjunum)
»
Síður: 1 2 3 4
|
|